Colas Ísland leitar eftir starfsfólki til vinnu á næstkomandi sumarvertíð. Um er að ræða tímabundin störf á tímabilinu þegar mest er að gera í malbikun þ.e. frá maí til og með september. Við leitum sérstaklega eftir fólki með vinnuvélaréttindi og/eða meirapróf. Einnig fólki með fjölbreytta reynslu og menntun í hin ólíku störf innan fyrirtækisins.