Verðbreytingar 1.febrúar 2010
Ágæti viðskiptavinur
Gefin hefur verið út ný verðskrá Nálgist hér
yfir vörur fyrirtækisins sem tekur gildi frá og með 1. febrúar 2010.
Ástæður hækkunar nú eru margvíslegar. Þyngst vegur að bindiefni á mörkuðum erlendis er nánast þrefalt dýrara en fyrir ári síðan og flutningskostnaður þess hefur hækkað mikið. Því miður hefur gengi krónunnar ekkert styrkst og er ekki líklegt til þess á næstu misserum. Fyrirtækinu er nauðugur einn kostur að reikna þessar hækkanir að fullu í verð malbiks nú.
Breyting á virðisaukaskatti í 25,5% kemur að sjálfsögðu til framkvæmda en þyngra vegur að allskyns aðrar álögur hafa verið settar á fyrirtæki. Má þar nefna hækkun á tryggingargjaldi, olíugjaldi og bifreiðagjöldum. Nýir skattar eins og kolefnisgjald og skattur á raforku vega þungt í framleiðslukosnaði og svona mætti áfram telja. Þrátt fyrir gríðarlega hagræðingu og sparnað á síðasta ári til að vega á móti miklum samdrætti í malbiksframleiðslu dugði það ekki til og afkoma félagsins var algjörlega óviðunandi. Líklegt er að eftirspurn minnki jafnvel enn frekar á þessu ári og aðlaga þarf fastan kostnað að minni framleiðslu.
Við viljum jafnframt vekja athygli á ódýrari kostum í malbiki. Við höfum þróað malbikstegundir sem innihalda endurunnið malbik og ódýrari steinefni. Slíkt malbik getur hentað víða. Starfsmenn okkar eru ávallt til ráðgjafar um efnisval og aðferðir.
Undirritaður vill nota tækifærið og ítreka við viðskiptavini að tilkynna strax eða eins fljótt og hægt er um alla samninga sem viðkomandi vill gera við Hlaðbæ-Colas hf um verkefni sumarsins svo fyrirtækið geti brugðist við með því að tryggja verð aðfanga. Á tímum sem þessum getur Hlaðbær-Colas hf. annars ekki tryggt að staðið verði við verðtilboð sem gefin eru hverju sinni enda ákvæði um að hvert tilboð gildir aðeins í 4 vikur frá tilboðsdegi.
Okkur þykir miður að boða þessar hækkanir nú en hjá þeim verður ekki komist og viljum við hvetja viðskiptavini okkar til að taka tillit til þessara verðhækkana við áætlanagerð og tilboðsútreikninga á næstu mánuðum.
Gunnar Örn Erlingsson (gunnarer@colas.is), Gunnar Örn Haraldsson (gunnar@colas.is) og undirritaður (sigthor@colas.is) veita nánari upplýsingar.
Virðingarfyllst
________________________________
Sigþór Sigurðsson
framkvæmdastjóri
